Fyrir nokkru sögðum við upp Stöð 2 eftir tveggja ára áskrift.Ákvörðunin var tekin fyrst og fremst vegna þess að dagskráin var ekki áskriftargjaldsins virði. En sú staðreynd, að maður skipti frekar yfir á ÍNN en að finna boðlegt efni á Bíórásinni, Extra eða sjálfri Stöð 2 hafði einni áhrif.
Nóg með það, dagskrársnauð Stöðvar 2 er ekki aðalinntakið í þessu bloggi... heldur Hrafnaþingið á ÍNN. Fyrir þá sem hafa ekki séð þessa þætti geta horft á þá á netinu.
Þættirnir skiptast oftast í tvo hluta.
Fyrri hlutinn er sorgleg og mismálefnaleg skoðanaútrás gamals sjálfstæðismanns sem skilur lítið eftir sig. Aðallega er þetta vettvangur hans til að lýsa nánast fjandsamlegum skoðunum sínum á stjórnarandstöðunni og þeim sem ekki ganga bláa stiginn . Þó vona ég fyrir sjálfstæðisflokkinn að menn eins og hann séu á undanhaldi.
Það sem skiptir máli hér er að hann talar oftast yfir vefmyndavél frá Florida. Tæknifólkinu hjá ÍNN hefur greinilega ekki dottið í hug að láta karlinn taka upp masið inn á tölvuna og senda síðan afraksturinn yfir netið. Í staðinn virðast þeir taka upp vefmasið beint yfir netið með tilheyrandi gæðaleysi og truflunum. Vefmyndavélin er greinilega innbyggð í makkann hans því gæðin eru eftir því. Það verður því ansi skelfileg útkoman í 42" sjónvarpi eins og hjá mér. Hann teygist óþægilega út til hliðanna og líkist meira persónu í sækadelísku tónlistarmyndbandi (t.d. eins og Black Hole Sun m. Soundgarden þar sem tyggjóteygist á fésunum á fólkinu)
Seinni hluti þáttarins felur í sér viðtal við "vel valda gesti", sem eru oftast fólk með sömu öfgaskoðanir og kallinn, eða sjálfstæðismenn sem á að mæra. Næsta þriðjudag er t.d. viðtal við Gunnar I. Birgisson sem hefur, að sögn Ingva Hrafns verið ráðist mjög óvegið að. Það besta við þessi viðtöl hans Ingva, er að hann tekur nokkur þeirra þau frá Flórída!! Í flestum öðrum viðtalsþáttum er það þannig að ef viðmælandinn kemst ekki í stúdíóið er notast við tæknina og þá oft vefmyndavélinni beint að honum. En nei, ekki hjá Ingva. Viðmælandinn fær sér sæti í stúdíóinu og svarar spurningum sem Ingvi spyr yfir netið, í gegnum sömu lo-fi vefmyndavélina frá Flórída. Þetta venst afar illa.
Fyrsta viðtalið sem ég sá var við Guðlaug Þór Þórðarson, sem fannst hugmyndin greinilega ekki alveg jafn klever og Ingva. Enda er hugmyndin ótrúlega sillí; Guðlaugur talar inn í Makka sem situr á borðinu og er nettengdur til USA með lítilli bandvídd, sem skilar kjánalegri stemningu beint til áhorfandans.
Ef maður vissi ekki betur, þá héldi maður að Guðlaugur Þór væri að taka Ingva Hrafn í viðtal.
Vissulega gerir Ingvi Hrafn heiðarlega tilraun til að nýta tæknina til að geta bæði unnið og sólað sig á sama stað, en útfærslan er ekki flott og kveikir í mér kjánahroll.
