
Mér finnst ég knúinn til að fara nokkrum minningarorðum um tónlistarmanninn Chris Cornell. Eins og þeir , sem hafa með honum fylgst, hafa tekið eftir framdi hann tónlistarferilssjálfsmorð með nýjustu sólóplötunni.
Upphafið - Soundgarden
Alla detaila um Chris er hægt að finna á Wikipedia. Ég hef fylgst með honum síðan Arnar bekkjarfélagi kynnti mér fyrir meistaraverkinu Superunknown með Soundgarden. Eftir það hlustaði ég aftur fyrir mig á Badmotorfinger, sem er að mínu mati ein flottasta þungarokksplata fyrr og seinna. Árið 1995 varð ég þess heiðurs aðnjótandi að sjá þá spila á Reading tónlistahátíðinni. Skömmu síðar, eða árið 1997 liðaðist bandið í sundur. Síðustu plötu sína, Down on the Upside gáfu þeir þó út árinu áður, sem er vissulega ekki eins rokkaðri og þær fyrri, en engu að síður mjög góð. Á ferli Soundgarden urðu til klassísk rokklög á borð við Black Hole Sun, Jesus Christ Pose og Pretty Noose.
Fyrri sólóferill
Eftir Soundgarden gaf Chris út sína fyrstu sólóplötu, Euphoria Morning, sem ég byrjaði þó ekki að hlusta á fyrr en í aðdraganda tónleikanna sem hann hélt í Laugardalshöll á síðasta ári. Sú plata skartar mjög flottum og Soundgarden-esce lögum. Frægasta er klárlega Can't change me.
Audioslave
Það þarf enginn að segja mér að ég get verið afar þrjóskur og óvæginn á margar hljómsveitir og jafnvel tónlistarstefnur. Hér get ég þó ekki hamið mig. Líklega þó vegna þess að ég syrgi ennþá báðar þær hljómsveitir sem hér er búið að sulla saman í eina ömurlega markaðshljómsveit.
Rage against the Machine var frábær. Soundgarden var frábær. Rage against the Machine meðlimir mínus Zach de la Rocha og Chris Cornell er bara rangt. Hvert lag varð einhvern veginn vandræðalegt í hlustun, þetta passaði bara ekki. Lagasmíðarnar ódýrar og umgjörðin angaði af peningalykt.. bjakk. Vissulega getur verið að þeir sem hafi kynnst þessum mönnum í fyrsta sinn á vettvangi Audioslave hafi verið hrifnir. Þá er það fínt.
Seinni sólóferill - Upphafið að endanum
Audioslave liðaðist í sundur árið 2007, þegar RATM komu saman aftur og Chris og Tom Morello einbeittu sér að sólópælingum. Hjá Chris var röðin komin að plötunni Carry on, sem geymir, að mínu mati, bara tvö góð lög Silence the voices og James Bond lagið You know my name. Platan fékk slaka dóma. Kemur mér ekki á óvart.
Úr "Jesus Christ Pose" í "Jesus Christ Chris... What the hell were you thinking???"
Á þessu ári kom svo út síðasta sólóplata Chris Cornell: Scream. Hún er unnin í samstarfi með Timberland sem sagðist hafa gert sína bestu plötu á öllum starfsferlinum. Chris sagði þetta vera nýjan hápunkt á sínum ferli.
Það er óhætt að segja að platan fékk arfaslaka dóma. Trent Reznor hefur m.a. látið hafa eftir sér að hann hafi skammast sín fyrir hönd Chris Cornell eftir að hafa hlustað á ruslið.
Gagnrýnandi á tónlistarbiblíunni allmusic.com lýsir samstarfi þeirra nokkuð vel:
"...Scream never seems like a collaboration, it seems like it was assembled by committee, discussed in boardrooms, farmed out to contract players and stitched together on computer."
Fyrir þá aðdáendur sem ekki höfðu gefist upp á Chris, held ég að nánast allir hafi gert það núna.
"og þér líður betur"
"Þá endum við lagið... og þér líður betur" söng Hinn íslenzki þursaflokkur. Það á svo sannarlega vel við hér. Blogg eru nefnilega frábær leið til að koma reiði, heift og sorg frá sér.
Góðar stundir.
2 comments:
haha, þú ert svo skemmdur.
:Dosti
Vá... mér SNARBRÁ þegar ég las dánartilkynningu Kornellsinz... úfff... ég hef að vísu ekki hlustað á nýju plötuna en fór á tónleikana í höllinni eins og þú. Þar sýndi hann fáránlega sönghæfni.. bara bull!
Ótrúlegt en satt þá er ég 100% sammála þér með Audioslave... alveg gjörsamlega hörmulegt!!!
En ég ætla að gefa þessari nýju sólóplötu hanns séns því eins og alþjóð veit þá hefur þú í flesta staði ömurlegan tónlistarsmekk!! Allavegana ekki sama smekk og ég og það gæti því verið skot á sjálfan mig ef þjóðin fengi að kjósa sín (sinn mann?) uppáhaldslög úr laga kistum okkar! :-)
Sendu inn athugasemd