föstudagur, 27. febrúar 2009

Jólabjórasmakk

Vissulega allt of seint að pósta þessu, en here it goes:


Þar sem við hjónaleysin erum orðin þrítug og orðin of gömul til að vera með sitthvort súkkulaðidagatalið, brugðum við á það ráð að smakka jólabjóra:


1. Tuborg julebryg í gleri
Hann: Einhverstaðar má finna gamalt blogg um skoðun mína á "íslenska" Tuborg julebryg.. ég stend við hana

Hún: Ok.

Einkunn: 6

2. Egils jólabjór í gleri
Karmellukeimur en svolítið rammur samt. Grasbragð. Ekkert jólalegt við bjórinn. Síðari flaskan var notuð til að skola niður saltfiskrétti á mánudegi.
Einkunn: 5

3. Royal X-mas í dós, hvítur
Hefur einkennandi bragð án þess að vera þungur. Sætt eftirbragð. Kom skemmtilega á óvart. Gæti komið sterkur inn sem nýrársbjór. Samt ekki í merkingunni þynnkubjór heldur frekar af því að hann minnir á freyðivín. Ekki skemmir fyrir að um er að ræða nokkurs konar samvinnubjór, þ.e bruggun bjórsins er samstarfsverkefni FAXE, Albani og Ceres. Vel gert.
Einkunn: 8

4. Arboga í gleri
Bjórinn minnir meira á dökkan Guinnes en jólin. Sem er ekki skrítið þar sem bjórinn er svartari en nóttin. Hálfgert miðjumoð. Ekki jólabjór heldur bara dökkur bjór. Hefur snefil af rúgbrauðsbragði.
Einkunn: fær 4 sem jólabjór en 7 sem dökkur bjór.

5. Ölvisholt brugghús – Jólabjór
Hún: Viðbjóður!! Nauðsynlegt er að breyta hinu ágæta slagorði „Veljum íslenskt“ í „Veljum íslenskt... nema jólabjórinn frá Ölvisholti brugghús“. Á miða flöskunnar segir að með brjórnum sé reynt að ná fram bragði hins sanna jólaanda. Ef sannur jólandi er viðbjóður þá hittir þessi bjór í mark.

Hann: Við fyrsta sopa fann ég bragð af ofþroskuðum banana. Ef innihaldslýsingin er lesin má sjá að ölið er kryddað kanil, negul, mjaðjurt og ætihvannarfræjum. Þroskaði bananinn er líklega negullinn og kanillinn.

6. Samuels Adams – winter lager í gleri
Kom skemmtilega á óvart. Var bara tekin með í smakk þar sem hann var við hliðina á jólabjórunum í ÁTVR. Frekar mildur, millidökkur bjór. Góður bjór.
Einkunn: 8

2 comments:

Óli Helgi sagði...

Skemmtileg færsla og gaman að sjá hvað það eru margir að spá og stúdera bjóra. Við erum merkilega sammála í þessum dómum en ég dreif í að skrifa dómana mína líka, þeir eru á www.olihelgi.com/blog.

Kjartan sagði...

algjör snilld.
"Ef sannur jólandi er viðbjóður þá hittir þessi bjór í mark." ég lá í gólfinu:)