föstudagur, 28. nóvember 2008

Náttúruverndaröfgasinnar

Ég veit, ég veit.. Youtube klippu frensí... betra en ekkert amk.

Lífsblómið

fimmtudagur, 13. nóvember 2008

Góða fyrirsögnin

Pray Rouder

Þegar Japanir eiga að bera fram L kemur R. Þaðan kemur m.a. nafnið á hinni sívinsælu vefsíðu www.engrish.com. Þegar Guns'n'Roses túruðu hér fyrir nánast 20 árum voru þeir staddir í Japan. Þeim fannst sniðugt að smella upp á breiðtjöldin "Pray Rouder" á meðan þeir snortuðu baksviðs á milli laga. Heimamenn öskruðu orðin tvö til að fá þá fram á svið.

Svo er það svo sneðugt að ef að Japanir fylgjast með ensku úrvalsdeildinni þá halda einhverjir sauðirnir með Riverpoo.

Já ég varð að koma með þetta auma spaug, því ég þurfti í dag að punga út veðmálsútborgun með tilheyrandi vöxtum og verðtryggingu til Púlara. Mér líður aðeins betur núna.

Bölva síðan sjálfum mér fyrir að hafa komið með hugmyndina að dráttarvöxtunum. Baaaaahh.