fimmtudagur, 30. október 2008
sunnudagur, 26. október 2008
Belgískar vöfflur: friend or foe?
Nú varð mér á í messunni.Hingað til hef ég notið þess að færa félögum mínum, sem hafa einhverra hluta vegna valið Liverpool sem sitt lið, sárabótaveitingar yfir Chelsea - Liverpool leikjum. Í lok leikjanna hef ég einnig kvatt þá með hughreystingarorðum um að jú einn daginn, muni Liverpool vinna.
Í dag gerðist svo hið ótrúlega.
Boltinn slysaðist klaufalega inn í mark Chelsea, svo slysalega að varla er til Púlari sem getur verið stoltur af sigrinum. Það sem gerir þetta enn meira frústrerandi er að slysið varð til þess að 4 ára og 8 mánaða taplausu tímabili Chelsea liðsins á Stamford Bridge lauk.
Eðlilega fer maður að leita skýringa á hvers vegna svona hlutir gerast. Líklegustu skýringuna er að finna í veitingunum. Fyrir þennan örlagaríka dag hafði ég boðið upp á amerískan dögurð með öllu tilheyrandi, en í dag þurfti ég að rugga bátnum með belgískum vöfflum, ferskum jarðarberjum og rjóma.
Það er mér því augljóst að rúðustrikuðu brauðin frá Belgíu urðu Chelsea að falli. Mér er þó gjörsamlega ómögulegt að spá fyrir um hvort þetta muni hafa dómínóáhrif á önnur lið í ensku úrvalsdeildinni.
Ég get sjálfum mér um kennt og eins og þroskuðum einstaklingi sæmir, mun ég læra af mistökum mínum og koma í veg fyrir að mistök sem þessi endurtaki sig ekki:
Það er því ekki feitur séns í helvíti að þessar afætur fái að koma aftur að horfa á leiki hjá mér.
Subscribe to:
Posts (Atom)