Ég öfunda þá sem ekki hafa séð grínþættina Arrested Development. Þeir sömu eiga það þá eftir, að sjá eina bestu grínþætti sem gerðir hafa verið í seinni tíð. Best er að eiga þessa þætti á DVD þar sem brandararnir eru svo margir og vel faldir á köflum, að engan veginn er hægt að ná þeim öllum í fyrstu atrennu.
Hins vegar virðast vel gerðir og góðir grínþættir, sem hafa sópað til sín verðlaunum, eins og þessir ekki ná miklum vinsældum hjá Kananum, því hann var tekinn af dagskrá eftir 3 seríur. Hvað er málið með Kanann? Þarf alltaf dósahlátur og endurunnið ófyndið handrit til að auka áhorfið? Eru þættir á borð við King of Queens, Two and a half men, Man of the house og According to Jim virkilega málið þarna vestra?
Í klippunni hér að neaðn tjáir David Cross, sem leikur hinn óviðjafnanlega Tobias Funke, skoðanir sínar um örlög grínþáttanna.
laugardagur, 30. ágúst 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)