mánudagur, 9. júní 2008

Nude/Big Ideas remix

Kjartan Bragi sendi mér þetta. Þetta er agalega kúl. Þetta er semsagt remix af laginu Nude með Radiohead af In Rainbows disknum.

þriðjudagur, 3. júní 2008

Erfðaprins


Hundraðasta blogginu mínu getur ekki verið betur varið í annað en að bjóða litla drenginn minn velkominn í heiminn.

Hann fæddist 30.maí kl 22:15, þó nokkuð fyrir áætlaðan tíma (19.júní). Þannig eignuðumst við Jóhanna lítinn tvíbura. Hann mældist 50 cm við fæðingu og vó 2950 grömm (12 merkur).

Fegurð hans er dáleiðandi.