föstudagur, 15. febrúar 2008

Women, know your limits

miðvikudagur, 13. febrúar 2008

Rockin' and a rollin'


Þessa dagana er ég að rifna úr gleði yfir fyrstu afmælisgjöfinni minni: Roland Micro Cube magnaranum sem Erla Bea og Árni Jay gáfu mér. Þetta er gríðarlega saklaust lítið box að sjá en rífur feit riff þegar búið að kynda upp í honum. Hann kemur svipað á óvart og þegar ungabarn ropar líkt og djöfullinn hafi tekið sér bólfestu í því eitt augnablik.

Hann inniheldur "eftirprentanir" af klassískum mögnurunum: VOX AC-30, Roland JC-120, Fender Twin Reverb, Marshall JMP1987 og MESA/Boogie Rectifier. Þarf maður eitthvað meir? Breiddin er ferlega mikil á miðað við magnara sem er ekki stærri en fótbolti.

Þrátt fyrir smæð þá vantar ekki effektana heldur: Boss chorus, flanger, phaser, tremolo og einfalt delay og reverb er smekklega komið fyrir í tveimur snúningstökkum.

Það sem mér finnst fullkomna magnarann er litli 5" hátalarinn í 24x22 cm kassanum. Hljóðið sem myndast inn í boxinu er ólíkt því sem maður fær úr "fullorðnum" mögnurum. Boxið er mjög "rigid" og því ekki nein aukahljóð í því á neinum tíðnum.

Allavega, mæli með honum, uppáhaldsleikfangið mitt þessa dagana. Takk fyrir mig.

fimmtudagur, 7. febrúar 2008

Nýr skrifborðsstóll



jebb.. þetta er málið.