Ok, tékkið á þessu, þetta er sillí fyndið:
Í dag var í sambandi við norskt fyrirtæki til að komast að því hvernig ætti að samþætta kerfið þeirra við okkar kerfi þegar í ljós kom að gagnagrunn.........................
Nei, ég ætla ekki einu sinni að reyna. Bloggið verður bara að bíða þangað til ég fæ lífið mitt aftur.
Hér er Honda auglýsing sem er nokkuð flott:
þriðjudagur, 29. janúar 2008
mánudagur, 28. janúar 2008
Afsakið hlé
Þessa dagana er ég allan daginn (og stundum nótt) að vinna. Ekki vil ég fæla lesendur frá með vinnutengdum pælingum eða nördalegu stöffi... þannig að í staðinn fyrir hefðbundið blogg: lyftutónlist.
laugardagur, 19. janúar 2008
Árslistinn 2007

Vegna gríðarfjölda beiðna í gegnum kommentakerfið hef ég samþykkt að setja saman lista yfir þá diska sem mér þótti standa upp úr á árinu 2007.
Færið músarbendilinn hingað og smellið með vinstri músartakkanum (McNotendur: ýtið á músina sjálfa) og listinn góði mun birtast í nýjum glugga.
Ekkert sænskt band komst á listann þetta árið þar sem Cardigans, Roxette og Gert Johnnys eru svo gott sem hætt auk þess sem Hives og Kent gáfu út skítaplötur... úff djöfuls drasl..
Eníhú... endilega bendið á frábærar plötur ársins í commentakerfinu, eða bara yfir höfuð. Mig vantar eitthvað nýtt að hlusta á.
Mæli líka með nýju plötu Of Montreal: "Hissing Fauna, Are You the Destroyer?"
föstudagur, 18. janúar 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)
