þriðjudagur, 13. nóvember 2007

REY - EGS - REY


Ok hér kemur það. Loksins drullast maður til að blogga og nú þarf ég að blogga nokkuð aftur í tímann. Hverfum aftur til dagsins 26. október 2007. Lífið var einfalt, íbúðarlánavextir í 4,95, hlutabréfamarkaðurinn í ágætis standi og krónan í sögulegum styrkleika. Í slíku blússandi góðæri skellti ég mér því ásamt fríðu föruneyti til skyldfólks sem elur manninn á Norðfirði (that's Neskaupsstaður fyrir þá sem ekki vita... Bjössi veit þetta, hann maukaði nokkra Norðfirðinga hér á árum áður sér til dægrarstyttingar).
Þar sem um stutta helgarferð var að ræða kom ekki til greina að eyða 16 tímum af ca 48 í að aka og því var tekið flug austur á land, nánar tiltekið til Egilsstaða. Hér koma nokkur flight-statistics:

REY-EGS
Celebs um borð : 1 (P.Óskar)
Ælupokar fylltir : 1,5
Hjól niður fyrir lendingu : 2/2

Í fluginu náði ég að sannfæra ferðafélagana að við (ég) yrðum að koma við á TommaBúllunni á Egilsstöðum áður en við héldum áfram á áfangastað, þar sem að svili minn hafði gott orð af hreindýrabúrgernum sem fæst þar. Hann var undir væntingum. Seinna fékk ég þær upplýsingar að ég hefði átt að setja rauðkál á milli og einhverja sósu.. verð því að gera mér aðra ferð austur.

Þegar á Norðfjörð var komið var lífið pretty sweet(berist fram a la Larry David): matur-kaffi-matur-heimsókn til ættingja(inc.kaffi)-kaffi-matur-kvöldkaffi. Í fullkomnu jafnvægi sykurvímu af heimabökuðu gúmmelaði og kaffibuzzss var lagst fyrir framan sjónvarpið í góðum félagsskap og horft á alla leikina í ensku deildinni sem í boði voru.

Jóa og Lalli: takk fyrir mig.