sunnudagur, 21. október 2007

Kimi Räikkönen heimsmeistari

Hvað getur maður sagt? Ég byrjaði að horfa á keppnina með þá einu von að Hamilton ynni en ekki Alonso, því að litlar reiknuðust mér til líkur á því að Ferrari ynni titil ökuþóra. En með runu óhappa og einkennilegra ákvarðana McLaren liðsins sigldi Kimi í endamark án nokkurra vandræða.

Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvernig hljómurinn hefði verið í McLaren aðdáendum ef þeir hefðu unnið? Hefðu þeim fundist sigurinn verðskuldaður á miðað við það sem á undan hafði gengið? Ekki viss um að þeir hefðu fengið frið fyrir gagnrýnisröddum fram að næsta tímabili. Þó verð ég að segja að ég finn til með Hamilton að lenda í öllum þessum hremmingum, með sigurinn nánast lagðann upp fyrir sig síðustu tvö mótin.

Ég óska Kimi til hamingju með sinn fyrsta F1 sigur sem hann halaði ekki inn fyrr en hann komst til almennilegs liðs ;). Ekki má þó gleyma því að Massa á einnig mikinn heiður skilinn fyrir sitt framtak í keppninni þar sem hann var lykilmaður í sigri Kimi.

fimmtudagur, 11. október 2007

In Rainbows


Jólin komu snemma í ár. Nánar tiltekið í gær, þegar nýja Radiohead platan, In Rainbows kom út. Radiohead eru bestir og gáfu út plötu til að minna vitleysingana sem vissu það ekki fyrir á það. Hún hljómar yndislega og er tjillaðri en flestar þeirra fyrri. Fyrir þá sem hafa áhuga, þá virðist Jonny hafa lagt til hliðar fræga telecasterinn sinn og er byrjaður að spila miklu meira á Starcasterinn sinn, sem hljómar jú yndislega. Samspil hans og Ed O'Brian með botninum frá Colin Greenwood í Weird Fishes/Arpeggi er eitt það flottasta á disknum. Gleðileg jól.

þriðjudagur, 9. október 2007

KEF-CPH-ARL-CPH-KEF


Þá er maður kominn heim eftir 5 daga erfiða törn á Excel námskeiði í Stokkhólmi. Vinnufélagi minn sem þykist þekkja eitthvað til í borginni gerði lítið annað en að þvælast með okkur í skuggalegar endagötur ("styttri leiðin") og stinga upp á kebabi í hvert mál. Eftir að við kláruðum daglegu Excel verkefnin gafst okkur sjaldnast tími til að kanna hið blómlega skemmtanalíf borgarinnar þar sem klukkan var jú orðin 20:30 og þá allir borgarbúar farnir að sofa.



plúsinn +:
Verðið á General snusi - Verst að þetta er bannað á Íslandi... en eðlilega, þar sem þetta er mikið hættulegra en sígós og er stórhættulegt fyrir nærstadda að anda að sér.

mínusinn -:
Svenska Kjottbullar - Þær eru alveg eins og hakkbollur hér heima. What's the big deal



Næst: Yoko Ono toppar Glitnisklappið.