Maður er vanur að sjá Chelsea á toppnum, en ManUtd í fallsæti?? Ég geri mér grein fyrir því að það er mikið eftir af vertíðinni en þetta er bara of fallegt til að hundsa.
laugardagur, 25. ágúst 2007
"Allt eins og það á að vera"
Maður er vanur að sjá Chelsea á toppnum, en ManUtd í fallsæti?? Ég geri mér grein fyrir því að það er mikið eftir af vertíðinni en þetta er bara of fallegt til að hundsa.
fimmtudagur, 16. ágúst 2007
Ronaldo (again)

Þeir sem hafa lesið bloggið mitt frá byrjun hafa tekið eftir því að ég hef skrifað nafn Man Utd leikmannsins Ronaldo ranglega. Ég hef hingað til haldið að leikmaðurinn bæri fornafnið Cristina.. en svo er vitanlega ekki. Það var þó ekki fyrir tilstillan blogglesenda sem villan komst upp, heldur var það þegar ég las beina lýsingu mbl.is af leik Portsmouth og ManUtd.
"20:29: Cristiana Ronaldo leikmaður Man. Utd. fær rautt spjald gegn Portsmouth og er því jafnt báðum liðum. Það er heldur farið að hitna í kolunum en Ronaldo virtist hafa skallað einn leikmann Portsmouth." - www.mbl.is
Ég biðst velvirðingar á mistökunum og hér eftir reyni ég að stafsetja nafnið hennar rétt.
miðvikudagur, 15. ágúst 2007
Rooney off

Jæja, þá er úrvalsdeildarboltinn byrjaður að rúlla aftur. Gaman gaman. Þegar þetta er skrifað þá er Everton efst með 6 stig, þ.a. Stefán Freyr.. njóttu á meðan varir!!. Man Utd eiga ekki beint óskabyrjun, þar sem að Wayne Rooney verður frá vegna meiðsla næstu þrjá mánuði. Allir þeir sem eitthvað vit hafa vita að það skiptir engu þar sem Chelsea tekur þetta í nefið þetta árið.
þriðjudagur, 7. ágúst 2007
Eaton Centre
Í midbæ Montreal er Eaton Centre sem er nedanjardarmall ad hluta og virdist dreifa sér endalaust um midbæinn. Á nedstu hæd heyrir madur greinilega í nedanjardarlestunum og finnur gólfid ridast til. Vid thad verdur kaupóda ferdafélaganum bumbult og vill gera hlé á kaupunum... sem er gott.
föstudagur, 3. ágúst 2007
Subscribe to:
Posts (Atom)


