laugardagur, 28. júlí 2007

Heimildamyndafrensí


Nei, sjónvarpið er ekki að gera það fyrir mig með efni á borð við Die Luftbrücke, Russkiy kovcheg, endursýndum Sönnum íslenskum sakamálum né laugardagsmyndunum Sixth Day (kemst ofarlega á lista yfir versta sorp í heimi) eða Kill the Man (ísl. "Drepið manninn"). Í staðinn hafa heimildamyndir átt hug minn allan síðustu dagana:




Wilco - Am I Trying to Break Your Heart
Góð mynd um hljómsveitina og baráttu milli indís og risans. Sérstaklega athyglisvert þegar Jay Cutler er rekinn úr bandinu. Hann stakk upp úr eins og sár þumalfingur.

Sicko
Michael Moore lýsir lömuðu og gjörspilltu heilbrigðiskerfi/tryggingakerfi BNA á sinn hátt. Eftir áhorfið er maður þakklátur fyrir heilbrigðiskerfið á Íslandi og Evrópu. Ef að heilbrigðiskerfið okkar verður einkavætt af sjálfstæðisstráklingum þá verður stefnan sett á Frakkland, því samkvæmt myndinni er Frakkland málið.

9/11 conspiracy
Eftir að hafa horft á þessa mynd er mér fullkomlega ljóst að tvær flugvélar urðu ekki til þess að tvíburaturnarnir í New York féllu eins og spilaborg. Myndin sýnir fram á með grunnskólaeðlisfræði að 100+ hæða hús getur ekki implodað nema að átt hafi verið við grunninn og innviði. Það eru líka aðeins of margar "tilviljanir" í kringum þennan dag sem erfitt er að líta framhjá þegar rætt er um ábyrgð af tilræðinu. Eftir að hafa séð þessa mynd, þá vil ég halda því fram að Rudy Guiliani fái afnot af kosningasvindlvélinni allavega í prófkjöri Repúblíkanana. Smá fyndinn útúrdúr

Jesus Camp
Í þessarri ræmu fær söngurinn "Ég er hermaður krists" algjörlega nýja merkingu.
Þessi fjallar um vitfirrta feita kellingu sem heldur úti sumarbúðum fyrir börn og ætlar sér að ala upp kristilega hermenn sem eru tilbúnir að láta lífið fyrir "krist". Ekki fer lítið fyrir hræsninni sem gjarnan fylgir svona sjúklega heittrúuðu fólki. Myndin vakti afar sterk viðbrögð og þó að nú sé búið að loka búðunum eftir að áhorfendur myndarinnar gengu berserksgang á svæðinu (classic nornaveiðar a la USA) er manni samt ekkert létt, því svona lið finnur sér alltaf nýjar leiðir.

miðvikudagur, 4. júlí 2007

Sky blue sky


Hvað getur maður sagt?? Jeff Tweedy er snillingur!! Mæli þó með að byrjendur byrji á því að hlusta á Yankee Hotel Foxtrot, síðan Ghost is born og enda svo á þessarri snilld. Mæli með að aðrar hljómsveitir fresti útgáfum sinna platna nema að þær vilji að þær falli í skuggann á þessarri.