fimmtudagur, 21. júní 2007

Indí krossferð sem faulaði

Keikur sagði ég dagsfarsprúða vinnufélaga mínum að ég færi á aðra tónleika viku eftir Air tónleikana, nefnilega á The Rapture. Með kurteisisáhuga spurði hann: "The Rapture já, eru þeir e-ð góðir?". Ég taldi svo vera og benti honum að hlusta á House of Jealous Lovers af Echoes sem ég taldi vera ágætur inngangspunktur inn í tónlistina. Man, was I wrong:

JÉSUSSSSSSSS!!!! ÖMURLEGT!!!! ÞVÍLÍKT SURG!!!
MIG LANGAR NÚ BARA TIL AÐ HLUSTA Á RESTINA FYRST ÞETTA VAR BESTA LAGIÐ!!!!
ÁRNI!! ÉG HATA ÞIG!!!

Kveðja / With regards

Sturla Þorvaldsson

Kaupþing / Kaupthing Bank



Ég bendi á að fontastærðin hefur verið minnkuð verulega, þar sem blogspot.com leyfir ekki öskur af þessu tagi. Raunfontastærðin: 36.

Einn daginn næ ég til hans, þegar örsmæðarvélin mín er tilbúinn og ég get flogið inn í heilann á honum og leiðrétt tónlistarsmekkinn hans.

miðvikudagur, 20. júní 2007

Air í höllinni


Ég hugsa að það sé óhætt að segja að Air (Jean-Benoît Dunckel t.v. og Nicholas Godin t.h. ásamt sessionistum) hafi tryllt lýðinn í höllinni í gærkvöldi með frábærum tónleikum.

Þeir byrjuðu á lögum af Pocket Symphony og þræddu svo meir og meir við lögum af Moon Safari, 10.000 hertz legend og Talkie Walkie.

Það kom mér sérstaklega á óvart að það er Dunckel sjálfur sem ljáir frábærum lögum Air þessa kvenlegu/barnslegu rödd sem ég hélt alltaf að væri fixuð í stúdíói eða sungin af þokkafullri konu.

Annað sem vakti áhuga minn, voru græjurnar. Eldgamall Rhodes, vintage græjur (sem áttu eftir að hrjá Dunckel í síðasta laginu), vocoder sem Godin söng í gegn um í Remember og Kelly Watch the stars, bassar sem voru overdrive-aðir á gamla mátann , þ.e. keyrðir yfir þolmörk magnaranna og mynduðu þannig þetta massakúl Air bassasánd sem má heyra á t.d. Talisman og La Femme D'argent.

Bandið var klappað upp tvisvar og í seinna skiptið enduðu þeir á snilldarlaginu La Femme D'argent þar sem allt ætlaði um koll að keyra.

Frábærir tónleikar.


The Virgin Suicides

Cemetary Party

Pocket Symphony
Space Maker
Once Upon A Time
Napalm Love
Photograph
Mer Du Japon

10000 Hz Legend

Don't be light

Talkie Walkie
Cherry Blossom Girl
Venus
Alone in Kyoto
Another day

Moon Safari
Kelly wath the stars
Tailsman
Remember
Sexy Boy
La Femme D'argent

Ath! Þetta er ekki tæmandi listi yfir lögin sem þeir tóku, gæti vantað e-ð þarna inn.

föstudagur, 15. júní 2007

OK Computer 10 ára


Meistaraverkið OK Computer með hljómsveitinni Radiohead var gefið út þennan dag fyrir 10 árum. Þessi diskur var hvað lengst í spilaranum af öllum diskum sem ég hef átt. Hann var valinn sem besti diskur síðustu 20 ára af Spin Magazine og einn af 100 bestu diska allra tíma af Time Magazine, enda vel af þeim heiðri kominn. Ef þú, lesandi góður, átt ekki þennan disk, þá mæli ég með að þú leggir niður hakann, hlaupir út í banka, takir út sparnaðinn, farir út í hljómplötuverslun og kaupir gripinn.

Svo mæli ég líka með tónleika/heimildarmyndinni "Meeting People is Easy", sem sýnir frá lífi þessarra fimm snillinga sem Radiohead samanstendur af, í kringum útgáfu og eftirfylgni plötunnar.

mánudagur, 11. júní 2007

Þættinum hefur borist bréf

Alveg fékk ég einkennilegt bréf í pósthólfið mitt, líklegast hefur þetta átt að fara á e-n annan Árna:


From: Greg [mailto:greg@kayakingaroundiceland.com]
Sent: 10. júní 2007 15:31
To: arni.bjorn.vigfusson(at)gmail.com
Subject: We're doing ok.

Hi Arni.

Just wanted to send you an email via my satellite phone to tell you we're ok. Me and Helga are paddling as hard as we can so we can reach Barthastrond before dawn. If you're ever in Reykjavik, please, don't try the Hlollabatur subs, at least not their raekjubatur. We've just recovered from explosive diarreha after eating there. Well, gotta go. Tell the Icelandic coastguard we're ok.

BR, Greg Paddle and Helga von Kayak.