þriðjudagur, 29. maí 2007

"It was one hell of a party"


Stefnir í hörkutónleikaár. Air eru að koma í höllina 19.júní.. jíha.

fimmtudagur, 24. maí 2007

The Rapture


The Rapture að koma til Íslands aftur og spila á Nasa 26 júní. Mikil snilld. Líðan minni yfir þessu öllu saman verður best lýst með textabroti úr laginu Heaven af Echoes "One, two, three, four, five, six, seven I'm floating in a constant heaven."

miðvikudagur, 16. maí 2007

Enn eitt sönnunargagnið

Nú skil ég af hverju ManUtd menn voru að beina mér á einhverja lamaða frétt með Mourinho og hundana hans.. þeir vildu koma í veg fyrir að ég sæi þennan sora:

Ronaldo er keddling

miðvikudagur, 9. maí 2007

Internetið - Dial-up Access

mánudagur, 7. maí 2007

Kosningar 2007 - Smá recap síðustu 12 ára

sunnudagur, 6. maí 2007

Til Man Utd manna

Þá er það ljóst, Chelsea eru ekki sigurvegarar ensku meistaradeildarinnar að þessu sinni, sem er miður. En svona er lífið, þeir bestu vinna ekki alltaf. Til að hafa smá skipulag á blogginu bið ég alla þá sem vilja skilja einhver sparðakomment að kommenta undir þessu bloggi. Takk fyrir.

P.S. Khalid Boulahrouz, þú ert bjáni.

laugardagur, 5. maí 2007

Guð geymi drottningar steinaldarinnar


Fimmta plata Queens of the Stone Age, Era Vulgaris, á skv allmusic.com að koma út 12. júní.

Ég er ánægður með allar þeirra fyrri plötur og get því ekki beðið eftir að fá að heyra þá nýju. Platan var tilbúin í apríl og eru 2 teaserar komnir á netið ásamt laginu Era Vulgaris (featuring Trent Reznor). Þau lög eru 3's & 7's og Sick Sick Sick sem er þyngra en andskotinn og við fyrstu hlustun nokkuð einfald lag sem manni finnst kannski ekki mikið til koma en festist síðan inn á heilann svipað og viðbrenndur hrísgrjónagrautur festist við pottinn. QOTSA fengu Julian Casablancas til að syngja inn á þetta snilldarlag og fellur hann mjög vel inn í kæfðu miðtónagítarana sem einkenna svo tónlist drottninganna.

An overall first impression of the songs is that Queens have delved even deeper into their already twisted take on psychedelic garage rock aesthetics, however this time around Homme ventures into swirling, almost Beatlesesque vocal harmonies on several tracks. As much as we hate hype and circumstance, this may very well be the best thing that Josh and the rest of the Queens have laid to tape since R made them a somewhat household name back in 2000.

IGN.com article, March 16, 2007.


Ég hélt ég væri ónæmur fyrir svona teaserum og svona umsögnum, en eins og staðan er í dag sé ég mig fyrir mér með gista í svefnpoka í röð fyrir framan Skífuna til að vera með þeim fyrstu að komast í eintak.