miðvikudagur, 18. apríl 2007
Peter, Bjorn og John

Föstudaginn 13. apríl spiluðu Peter, Bjorn og John fyrir troðinni Nösu. Sprengjuhöllin og Pétur Ben hituðu upp. Á aðgangsmiðanum stóð að tónleikarnir hæfust 22:00, en Sprengjuhöllin kláruðu sitt sett fyrir þann tíma. Sprengjuhöllin átti skemmtilega takta og hituðu ágætlega upp þá 20 sem mættir voru. Pétur Ben steig síðan á stokk með kassagítar einan að vopni og átti stórleik í ábreiðulögum eins og Billy Jean og Break on through.
Svíarnir mættu stutt eftir Ben frænda. Mér leist ekki á blikuna til að byrja með, hljóðið í algjöru rugli og Bassa-Bjorn eitthvað kvartandi að spottarinn færi í augun á honum. Svo fóru þeir hægt af stað inn í fyrsta lagið og náðu síðan upp þvílíku skriði að annað eins hef ég ekki séð. Þéttleikinn hjá tríói eins og þessu verður seint toppaður.
Hressandi að sjá að fólk þekkti fleiri lög en "flautulagið" (Young folks) og lögin af Writer's Block, því fólk virtist taka lögunum af Falling out jafnvel. Stemningin náði hámarki í "Up against the wall" í framlengdasta ruslatunnuendi sem sögur fara af. Snilldartónleikar með snilldarbandi.
mánudagur, 16. apríl 2007
Björk / Hot Chip

Jæja, long time no blog. Fór með frænku og frú á Björk og Hot Chip í höllinni annan í páskum. Ég viðurkenni að það kítlaði meira að sjá Hot Chip en hana Björk. Björk fór af kostum svo ekki sé meira sagt. Hún tók lög af nýju plötunni, Volta, í bland við gamalt efni. Anthony Hegarty kom og söng með henni eitt lag af stakri snilld. Ég á erfitt með að meðtaka nýtt efni tónlistarmanna á tónleikum en í þetta skiptið gekk það. Lagið sem hún og Hegarty tóku saman ásamt sjálfstæðisyfirlýsingarlaginu (þar sem Björk beinir þeirri ósk til Grænlendinga og Færeyinga að þeir lýsi yfir sjálfstæði frá Dönum) rötuðu beint í mark. Gömlu lögin voru öll spiluð í nýjum búningi með hjálp 12 brasskvenna sem stóðu sig vel. Framboð á gæsahúð rauk upp um 100% þegar Björk söng All is full of love og allt ætlaði um koll að keyra þegar hún tók eitt laga sinna í techno útgáfu. Í tveimur lögum var þessi tryllta græja notuð.
Hot Chip áttu á brattan að sækja eftir að Björk kláraði settið sitt. Þeir fengu einhvern Bónus hljóðmann sem skildi gítarinn eftir í kuldanum. Þeir voru framan af í basli með hljóðið, mónitora og mæka, en svo var þetta orðið stabílt (en ekkert gott) undir miðbik tónleikanna. Snilldin var ekki að skila sér til áheyrenda sem er miður. Súrt.
mánudagur, 2. apríl 2007
Of gott

Titillinn á þessarri frétt segir allt sem segja þarf um þennan leikmann.
Síðan var aprílgabb www.mbl.is nokkuð augljóst.
Á miðað við myndina virðist Ronaldo eiga meira heima hjá liði eins og Tottenham. Hohohohohohohohoho, hohohohohohohohohoho, paaaaaaahahahahahaha. Grýla hún hlær hé hé hé hé hé, og svo videre.
Smá skemmtiefni fyrir þá fáu sem ekki hlógu upphátt af síðustu málsgrein:
Subscribe to:
Posts (Atom)