fimmtudagur, 29. mars 2007

Tónleikafrensí á klakanum


Tveir tónleikar framundan sem ekki verður hægt að láta sér leiðast á. Björk og Hot Chip í höllinni 9.apríl og síðan Peter, Björn og John á Nasa 13.apríl. Svo eru Blonde Redhead á landinu og ég hefði ekkert á móti því að sjá þá í enn eitt skiptið, en maður verður jú að eiga fyrir mat og afborgunum ;). Aldrei fór ég suður dagskráin er líka packed with fun þetta árið: Blonde Redhead, Ham, I Adapt, Dr.Spock, Mugison, Reykjavík!. Eeeen, nenni ekki að fara.

föstudagur, 23. mars 2007

Þjálfari Man. Utd.


Shreeves: ”I asked him... ”
Ferguson: ”Fucking bastard.”
Shreeves: ”Don't talk to me like that.”
Ferguson: ”Fuck off to you.”
Shreeves: ”Don't talk to me like that. Don't even think about it.”
Ferguson: ”Don't you think about it, you cunt. Fuck off. Right?”
Shreeves: ”Listen, are you going to do the interview in a professional manner or not? Do you want to do it or not?”
Ferguson: ”You fucking be professional. You be professional. You're the one.”
Shreeves: ”I'm entitled to ask . . . . Cristiano gave the right answer.”
Ferguson: ”Fucking hell with your answers.”
Shreeves: ”Don't talk to me like that. Go away. If you want to behave civilly, fine. Don't talk to me like that.”
Ferguson: ”Fuck off.”

Ekki hægt að segja að mikil reisn sé yfir kallinum. Við vitum fyrir að ekki er mikil reisn yfir liðinu hans. En við verðum að gefa honum kúdós fyrir það að vera með jafnt kynjahlutfall innan liðsins. VG yrðu ánægðir með það. Reyndar myndu þeir ekki vera hrifnir af munnsöfnuði Fergusson.

fimmtudagur, 22. mars 2007

Kiddi


Það fór lítið fyrir iðrun hjá Kristni Björnssyni í viðtali Sigmars við hann í Kastljósinu nýlega. Hann og Árni Johnsen eiga það sameiginlegt að geta ekki sýnt neina iðrun. Þegar ég sé Árna Johnsen í viðtölum sé ég fávitagrey, en þegar Kristinn Björnsson mengar sjónsviðið mitt hvort sem er í sjónvarpi eða í Nóatúni, þá sýður í æðunum á mér. Hinir olíuforstjórarnir bera klárlega ekki minni sök í þessu máli en Kristinn. Það sem hann hefur þó fram yfir hina er þetta stífa viðmót og iðrunarleysi og það er það sem gerir mig sjóðandi brjálaðan. Það sem ég skil þó ekki er hvers vegna Kristinn mætir í þetta Kastljósviðtal. Hann má greinilega ekki ræða meira en helminginn sem hann er spurður út í að lögmannsráði og fyrir vikið tekur Sigmar hann í nefið. Kristinn kemur því út sem meiri skúrkur en maður hafði ímyndað sér fyrir.
Það sem viðtalið sýnir skýrt er að stjórnendaábyrgð er greinilega engin hvað samkeppnislögin varðar. Nú er (vonandi) síðasti séns á að stofna sitt fyrirtæki, bjóða samkeppnisaðila upp í dans og maka krókinn, leyfa Samkeppniseftirlitinu að brjóta upp partíið og láta hagnaðinn borga fyrir afbrotið, sleppa persónulega án nokkurra sakfellinga, fara í fjárfestingar og síðan þegar maður er orðinn leiður á að skoða tikkera og vísitölur, fer maður út og þrífur hatursorðin, sem enn einn sjúkur viðskiptavinurinn spreyjaði, af húsinu sínu í góða veðrinu.

mánudagur, 19. mars 2007

Räikkönen, Chelsea og Lampard


Räikkönen skilaði Ferrari bílnum í mark í fyrstu F1 keppninni á vertíðinni með miklum sóma. Það sem gerir sigur hans enn skemmtilegri eru hrokakommentin sem Alonso lét falla fyrir keppnina um að hann skildi af hverju Räikkönen hefði aldrei unnið neitt á McLaren bílnum. Spurningunni um hvort Räikkönen hafi verið bílböðull eða að McLaren bíllinn hafi verið drusla á tímabili ári var því ekki svarað í þessarri keppni. Alonso átti í mesta basli með nýliðann Hamilton sem var að sýna snilldartakta og fær kúdós fyrir að komast á pall í fyrstu keppninni sinni. Massa vann sig upp í 6. sæti úr 22. en fékk ekki mikið hrós fyrir það, þó svo að í þau skipti sem Schumi þurfti að gera það þótti hann sýna "meistaratakta". Massa á eftir að koma sterkur inn á þessari vertíð.

Talandi um meistaratakta. Meistararnir unnu góðan sigur á Sheffield Utd um helgina. Shevchenko átti gullfallegt mark, Kalou kláraði vel og Ballack jarðaði liðið með síðasta markinu. Frank Lampard er nýbúinn að tilkynna að hann vilji klára ferilinn með meisturunum, sem eru frábærar fréttir. Vonandi gengur félagið frá samningi við hann sem fyrst.

mánudagur, 5. mars 2007

Incubus - tónleikadómur


Fór á Incubus tónleikana á laugardagskvöldið. Ég hef sagt það áður og segi það enn, Laugardalshöllin er ekki tónleikastaður. Ég hef einu sinni farið út þaðan sáttur með sándið og það var þegar ég var alveg upp við sviðið þegar Blonde Redhead voru að spila og kerfið var ekki í gangi. Eníhú, upphitunarhljómsveit ríkisins, Mínus, sörguðu klisjurnar sínar til upphitunar að gömlum vana áður en aðalnúmer kvöldsins hóf leikinn. Incubus frá góðan plús fyrir að láta ekki bíða eftir sér. Þeir hófu tónleikana á fyrsta laginu á Light Grenades, Quicksand. Þeir tóku síðan góðan slatta af nýju plötunni, þ.á.m. Anna Molly (anomaly) og lög af Crow left to murder, sem er afar góður. Ég var búinn að hlakka mikið til að sjá gítarleikarann Michael Einziger að störfum og olli hann ekki vonbrigðum. Hann fór af kostum í lögum eins og Pistola og Sick sad little world, þar sem hann sýndi stórleik á gítarnum. Söngvarinn kom mér þó meira á óvart, þar sem hann söng ekki eina feilnótu. Þetta er án efa tónvissasti söngvari sem ég hef heyrt í live. Hann virtist hafa lítið fyrir þessu og skilaði sínu með stakri snilld.

Í öðrum fréttum er það helst að nefna að Utd vann óverðskuldaðan sigur á Liverpool. Utd voru í skítnum allan leikinn, þangað til að O'Shea rakst í boltann.