þriðjudagur, 30. janúar 2007

Varist eftirlíkingar

Nýji Bloc Party diskurinn, A Weekend in the City, er alveg ágætur. Er með hann í þriðju hlustuninni sem make-ar eða break-ar vanalega diska hjá mér. Eitt sem ég tók eftir við hlustunina, sem mikill áhugamaður um gítarspil og gítarsánd, var að lead gítarleikari hljómsveitarinnar notar óþægilega mikið af effecta trixum sem meistari Jonny Greenwood prýddi plötur Radiohead með, frá og með OK computer. Það er greinilegt við hlustunina að Russell Lissack, gítarleikari Bloc Party, er undir miklum áhrifum frá Greenwood þar sem hann spilar líka með mjög svipuðum hætti og hann. Vissulega er í raun ekkert að því að feta í fótspor snillinga ef það er gert á smekklegan hátt, þó mér finnist persónulega Lissack fara örlítið yfir strikið í tveim lögum. Það var þó ekki fyrr en að ég vildi fá að sjá mynd af kauða sem mér brá nokkuð mikið í brún. Látum vera að hann spili stöffið sem Greenwood er frægur fyrir, en lúkkið.. hvað meinarðu drengur??? Þarftu líka að vera nákvæmlega eins??? Við erum að tala um sömu hárgreiðslu og lúkk, sömu týpu af gítar (Fender Telecaster) og meira að segja svitabandið, sem Jonny notaði mikið á sínum tíma.

Hér má síðan sjá gaurana

miðvikudagur, 24. janúar 2007

Ronaldo kemur heim

mánudagur, 22. janúar 2007

Edinborg

Ég er nýkominn úr fríi sem ég varði með fjölskyldunni minni í Edinborg um helgina.






Þar var..

..Áfengi drukkið.
..Fræðst um whiskey.
..Haggis etið.
..Verslað fram úr hófi.
..Kastali skoðaður.
..Vinir hittir.



Nokkrar staðreyndir um Edinborg:

Edinborg er í Skotlandi.
Edinborg er höfuðborg Skotlands (ekki Glasgow).
Yfir Edinborg liggur megn Haggis lykt. (Án djóks)
Það er mikill rígur milli Edinborgarbúa og Glasgow búa.
Það tekur klst. að fara á milli Glasgow og Edinborg í lest.

þriðjudagur, 16. janúar 2007

WTF?


Höfundur: Pési Pornó :D

föstudagur, 12. janúar 2007

Ronaldo the player


Liðsmaður ManUtd, Christiano Ronaldo, fékk þann vafasama heiður að vera 2. mánuðinn í röð valin "leikmaður" mánaðarins eða eins og viðurkenningin útleggst á ensku: "The player of the month". Þykir hún sérlega vinsæl innan liðsins og hefur sængað hjá öllum liðsmönnum ManUtd nema Henrik Larssen sem er nýkominn sem lánsmaður til liðsins. Kannski verður lánið með honum.. muhuhuhu. Það sem færri vita er að Ronaldo hefur verið valin leikfang mánaðarins 23 mánuði í röð innan liðsins og auk þess alltaf verið kosin best klæddasta kona liðsins. Þó hefur Alex Fergusson stílisti liðsins ekki fengið næturgaman með ungu Ronaldo þar sem hann er of gamall til gamans skv. lögum félagsins um Ronaldoknús. Fergi!, Don't hate the player, hate the game.

fimmtudagur, 4. janúar 2007

Mesti rokkari allra tíma


On September 25, 1980, Bonham was picked up by Led Zeppelin assistant Rex King from The Old Hyde to be at rehearsals at Bray Studios for the upcoming tour of the United States, the band's first since 1977. During the journey Bonham had asked to stop for breakfast, where he downed four quadruple vodkas (roughly sixteen shots (~8cl) of vodka), with a ham roll. After taking a bite of the ham roll he said to his assistant "breakfast". He then continued to drink when he arrived at the studio. A halt was called to the rehearsals late in the evening and the band retired to Page's house — The Old Mill House in Clewer, Windsor. After midnight, Bonham had fallen asleep and was taken to bed on his side. It was rumoured that he had a total of forty shots that night. Tour Manager Benji LeFevre and John Paul Jones found him dead the next morning. Bonham was 32 years old.

The cause of death was asphyxiation from aspirating vomit; his central nervous system was too depressed by alcohol to stimulate the normal protective reflexes necessary to clear his airway. A subsequent coroner inquest found no other drugs in Bonham's body. John Bonham was cremated and a funeral was held on October 10th, 1980 at Rushock, Worcestershire parish church near The Old Hyde farm.

Ef maðurinn var ekki lifandi skilgreining á rokki, hver var/er það þá?

miðvikudagur, 3. janúar 2007

Tónlistarárið 2006


Gleðilegt ár öllsömul og takk fyrir það gamla.

Það var ekki upp á marga fiska 2006, sem tónlistarár að mínu mati. Ég las í fréttablaðinu uppgjör nokkurra þekktra tónlistarspekúlanta og annarra sem eru það ekki á diskum sem gefnir voru út á árinu sem er nýliðið. Slatta hafði ég hlustað á, mun fleiri hafði ég ekki heyrt minnst á. Nokkrir diskar áttu alveg rétt á að vera á listanum eins og:


Hot Chip - The Warning
Tvímælanlaust einn af þeim betri á árinu.

Beck - The Information
Frábær diskur frá þessum snillingi. Nausea er allls ekki besta lagið.

Figurines - Skeleton
Danir eru að stimpla sig feitt inn í indie rokkið með þessum.

Band of Horses - Everything all the time
Ágætur diskur alveg svosem, ekkert meistaraverk.

En að diskar eins og Black Holes and Revelations með Muse, Show your bones með The Yeah Yeah Yeahs og Ta dah með Scissor Sisters séu taldir vera það sem stendur uppúr á árinu fatta ég hreinlega ekki. En þegar ég hugsa síðan út í það, þá er enginn diskur sem gefinn var út á árinu sem maður getur talið vera eitthvað meistarastykki.

2007 á að lofa góðu segir fréttablaðið. Þeir sem stefna á útgáfu á árinu eru m.a.:

Radiohead (loksins)

Queens of the stone age (aka Josh Homme)

Arcade Fire (jahúú)

Interpol

Wilco

Blonde Redhead

Kings of Leon

Bloc Party

Smashing Pumpkins (Miiikil snilld)

..og þetta eru bara hluti af þeim nöfnum sem ætla sér útgáfu 2007

Af íslenskum böndum sem ætla mögulega að gefa út á næsta ári eru:
Mugison,
Mínus,
Appart Organ Quartet,
Ghostigital (Það voru peningar í þessu umslagi)
og Reykjavík!

2007 lofar góðu ef helmingurinn af þessu stenst.