
Það ber ýmislegt að varast þegar skrúfur og múrtappar eru keyptir. Það er ekki nóg að kaupa tappa og einhverjar skrúfur. Ummál skrúfunnar verður að vera í réttu hlutfalli við ummál múrtappans, því annars þenst múrtappinn ekki út sem skyldi. Ef keypt er of mjó skrúfa mun festingin við vegginn ekki duga sem skyldi. Skrúfan mun jú ríghalda í tappann, en tappinn festist ekki eins og halda mætti. Það dugir því ekki að bora í steinsteyptan vegg með 10 mm bor, setja 10 mm múrtappa í gatið og síðan 4,5 - 5 mm skrúfu í tappann. Það má hver heilvita maður vita, því ummál skrúfunnar þarf jú að vera 6,5 mm hið minnsta til að draslið haldist uppi á 10 mm tappa. Þetta hefði kannski ekki verið vandamál ef ég hefði ekki fengið hassreyktu týpuna til að "aðstoða" mig við skrúfukaupin. Því verður húsráðið mitt ekki endilega krafa um að kunna allan skapaðan hlut um skrúfur og múrtappa, heldur að velja afgreiðslufólkið vandlega. Ég mæli með að þið ræðið við eldri starfskraftana í Húsasmiðjunni þegar þið farið út í jafn alvarlegan hlut og að setja upp hillur.
Allir brandarar tengdir lausum skrúfum eða aðrir af kynferðislegu meiði vinsamlegast afþakkaðir í kommentum.




