fimmtudagur, 30. nóvember 2006

Veikindasjónvarp / veikt sjónvarp


Í dag lá ég heima veikur. Asnaðist til að fara í vinnuna "hálffrískur" eftir að hafa tekið veikindadag í gær en hrökklaðist heim eftir klukkustund af vinnu. Þegar ég ætlaði svo að láta sjónvarpið 2 dekra við mig með sinni vönduðu afþreyingardagskrá, var annað upp á teningnum. Á stöð 2 var tukthúsdrósin Martha Stewart <pzzt> Á Sirkus var Frægir í formi með erkifíflinu honum Árna Johnsen <pzzt> Á bíórásinni var milljónasta endursýning á Along came Polly <pzzt> Skjár 1 sýndi tónlistarmyndbönd <pzzt> Rúv hafði ekki hafið útsendingar, en sýndi í staðinn frá Alþingi. Þar sat Jón Sigurðsson undir ásökunum um hafa mismunandi skoðanir eftir því hvort hann sé í gervi formanns framsóknarflokksins eða ráðherra í ríkisstjórn (sjá hér). Þetta var það besta sem var í boði.

Um kvöldið rann það upp fyrir mér: Stöð 2 er með lame-ass dagskrá á fimmtudögum. Ég fyrirgaf þeim slaka sumardagskrá, en nú er kominn vetur og fimmtudagsvetrarkvöld eiga að vera vönduð. Hvað býður Stöð 2 uppá á prime-time í dag fimmtudag?

19:40 Búbbarnir (n.b. fékk gullkindina fyrir versta þáttinn)
20:05 Í sjöunda himni með Hemma Gunn (pleeeeaze, need I say more)
21:10 The Closer (bah)
21:55 Entourage (piff)
22:25 Arrested Development (Loksins!!! Loksins eitthvað gott)

já, klukkan 22:25 byrjuðu hlutir að gerast á stöð 2.

Hvað Skjá Einn varðar, þá étur hann fimmtudagana. Office, Venni Páer og Sigtið. Gæði ofan á gæði. (Eitt hint til S1: King of Queens er sérlega ófyndinn, smá arfi þarna inn á milli)

Skilaboð mín til stöðvar 2 eru þessi: "Ég gæti alveg eins keypt mér áskrift að MUTv og horft á stelpur sparka milli sín bolta og lita á sér hárið eins og að þola þetta drasl sem þið bjóðið upp á"

Svo að lokum vil ég afsaka lengd bloggsins, ætlaði aldrei að hafa neitt blogg svona langt. En það verður undantekning núna, þar sem ég er veikur og pirraður yfir því að sjónvarpið sveik mig.

miðvikudagur, 29. nóvember 2006

Incubus, Petr Cech og Pumpkins



Allt að gerast.. Incubus að koma á klakann í mars, Cech stefnir á að verja mark Chelsea í febrúar og Pumpkins eru að koma saman aftur og með nýja plötu. Að sögn Jimmy Chamberlain ofurtrommara var hann að klára að taka upp trommurnar en sú vinna hefur tekið ár. Þeir sem eitthvað hafa hlustað á Pumpkins hafa varla látið trommuleik þessa snillings fram hjá sér fara. Þegar þeir tilkynna næsta túr... þá fer ég að versla mér að flugmiða.. ekki spurning.

http://blog.myspace.com/

þriðjudagur, 28. nóvember 2006

"There's whiskey in the barrel"

'The founder of the Laphroaig Distillery, Donald Johnston, died a true distiller's death when he drowned in a barrel of half-finished whisky.' Þar hafiði það.. fróðleiksmoli dagsins.

laugardagur, 25. nóvember 2006

Timbraður

Baff.. Ég er nokkuð ryðgaður eftir skrall með Kábé í gær.

fimmtudagur, 23. nóvember 2006

Gítarhetja frá 8. áratugnum

Ef þið pásið á 1:43 þá verður hallærisdúddinn með ljóta gítarinn symmetrískur.

miðvikudagur, 22. nóvember 2006

Bíll spíll

Á myndinni til hægri má sjá tvær leiðir frá heimili til vinnu (Ármúli 13).
Græna línan táknar leiðina í vinnuna fótgangandi.
Sú rauða táknar feril bifreiðar í leit að bílastæði eftir kl.09:00 á morgnana og uppgjöf sem felst í því að skila bílnum aftur heim og taka grænu leiðina. Það tekur mig 6 mínútur að labba í vinnuna.

Stulli þrítugur


Sturla er 30 ára í dag.. til hamingju með afmælið kall.

þriðjudagur, 21. nóvember 2006

Hví tippaði ég ekki á Celtic?


Það væri gaman að gera smá skoðanakönnun hérna á blogginu mínu. Spurning dagsins er þessi: "Ertu Man Utd áhangandi og ef svo er, hefurðu heyrt lagið "Hate to say I told you so" með The Hives?". Notið endilega kommenta systemið til að koma ykkar atkvæði til skila. Ef svarið inniheldur einhvern bitran tón, þá verður það merkt sem "já".

Í öðrum fréttum: JólaTuborginn er kominn í hús og ætli maður verði ekki að opna einn núna í tilefni þess.

mánudagur, 20. nóvember 2006

Tapar Man.Utd fyrir Celtic?


Gagnasafn | þri. 7.11.2006 | Íþróttir |
Með öflugan hóp gegn Southend

SIR Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, mætir með öflugan hóp leikmanna til Southend í Esase, er fylkingarnar mætast í 16-liða úrslitum ensku deildarbikarkeppninnar í kvöld.

Íþróttir | mbl.is | 20.11.2006 | 16:53
United fór með sitt sterkasta lið til Glasgow

Manchester United fór með allt sitt sterkasta lið til Glasgow í dag en United sækir Skotlandsmeistara Glasgow Celtic heim í næst síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld. Lærisveinum Sir Alex Ferguson dugar að fá eitt stig til viðbótar til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum en Celtic er í öðru sæti á eftir United í riðlinum og á góða möguleika á að komast upp úr riðlinum.


Af þessum tveim fréttabútum að dæma, ætla ég að giska á að ManUtd tapi fyrir Celtic.

Chelsea liðið er óstöðvandi.

Chelsea slær ekki slöku við þessa dagana. Meistararnir sigruðu Liverpool 2:0 og Man Utd. 2:0 í gríðarspennandi leikjum í gær (í Pro Evolution Soccer á psp). Drogba átti bæði mörkin í leiknum gegn Liverpool og Shevchenco bæði í leiknum gegn Man Utd. Leikmenn Liverpool reyndu að hafa áhrif á gang leiksins með ýmsum brögðum (með því að tæma batteríið), en án árangurs (setti strax í hleðslu og resume-aði) .
Leikmaður Manchester United, Christiano Ronaldo, sýndi að vanda sína rómuðu flugtakta fyrir vanþakklátum áhorfendum. Á myndinni hér að ofan er hann nýlentur.

sunnudagur, 19. nóvember 2006

Snjór?? á Íslandi?

Við afi áttum bara eftir að grafa okkur út af bílastæðinu þegar gamla kallinum var nóg boðið. "Nafni minn, er ekki gáfulegra að þú labbir þessa skitnu 200 m í vinnuna en að láta gamlan mann strita svona?" spurði hann. Sjálfur hafði ég ekki hugsað þetta svona, svo að það endaði með því að ég gaf þeim gamla frí og rölti þetta.

laugardagur, 18. nóvember 2006

Sufjan Stevens tónleikarnir

Tónleikar Sufjan Stevens í Fríkirkjunni fóru fram úr væntingum. Hélt hreinlega að það væri ekki hægt að spila þessa tónlist jafn þétt og á diskunum. En jú.. gríðarlega pró brass sveit, þéttir gítarleikarar, fanta trommari og Sufjan sjálfur stilltu magnarana á 11 og náðu söfnuðinum á band með sér eftir fyrsta lag. Eins bjóst ég ekki við því að heyra feed-andi (vælandi) yfir-yfir-keyrða gítara á tónleikum með þessum hljómþýða manni. Fríkirkjan, sem virtist vera tvíbókuð í kvöld, er frábær tónleikastaður þar sem tónar, slög og söngur renna ekki saman í eina suð- og drunusúpu eins og virðist gerast svo oft á öðrum tónleikastöðum í borginni.

fimmtudagur, 16. nóvember 2006

Fyrsta bloggið



Jæja.. þá reynir maður þetta í fyrsta skiptið. Sjáum til hversu lengi ég held þetta út. Eftir margar misheppnaðar tilraunir endaði ég á að nota nafn lags með Mew sem url (smallambulance.blogspot.com).